Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir flokkinn hafa áform um að bjóða fram í öllum kjördæmum. Inga er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld.
Inga segir Flokk fólksins vera félagshyggjuflokk. Í þættinum skýrir Inga stefnumál flokksins og segir frá hvernig hann varð til. Flokkur fólksins kemur víða í stefnuskrá sinni.
Meðal þess sem Inga nefnir sem grunnskref í stefnu flokksins eru aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka. Flokkur fólksins vill uppstokkun í lífeyriskerfinu þannig að hér verði aðeins einn lífeyrissjóður, deildaskiptur.