Framboð davíðs skaðar sjálfstæðisflokk

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, mættu í Þjóðbraut í morgun og töluðu um forsetakosningarnar og eins nýjust skoðanakannanir um fylgi við stjórnmálaflokkana.

Svavar sagðist þeirra skoðunar að baráttuaðferð Davíðs Oddssonar hafi mistekist og hún hafi jafnvel skaðað Sjálfstæðisflokkinn.

Stefanía er ekki eins viss um það en tók undir með Svavari um að áherslur Davíðs hafi ekki verið réttar og eins hafi framboð hans borið að með of skömmum fyrirvara.

Bæði eru ánægð með úrslit forsetakosninganna og eru viss um að Guðni Th. Jóhannesson muni valda hlutverki mjög vel.