Kosningaþáttur Hringbrautar verður á dagskrá í kvöld, milli klukkan 20:00 og 22:00. Rætt verður við alla frambjóðendur til embættis forseta Íslands, nema Ástþór Magnússon, sem gaf ekki færi á sér.
Auk frambjóðendanna verður rætt við Styrmi Gunnarsson, Þórhildi Þorleifsdóttur, Heiðu Kristínu Helgadóttur, Pawel Bartoszek, Óttarr Proppé og Einar Kárason.
Rifjaðar verða upp sögur af fyrri kosningum, hvað viðmmælendum þykir um kosningabaráttuna núna.
Kann að vera að úrslitin séu ráðin? Þetta og svo margt annað með gestum og frambjóðendum.
Umsjón með þættinum hafa Linda Blöndal og Sigurjón M. Egilsson.