Friðjón R. Friðjónsson, sem býður sig fram í 4.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að það gæti verið hollt fyrir flokkinn að taka eitt eða tvö kjörtímabil í stjórnarandstöðu. Það væri hins vegar hrollvekjandi.
Friðjón ræddi þetta, og fleira, í þættinum Harmageddon á Xinu 977.
„Það er ekkert að því fyrir stjórnmálaflokka að vera í stjórnarandstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn hefði alveg gott af því. Ef maður horfir bara á flokkinn þá hefði hann gott af því, fara inn í kjarnann og finna mojoið, ef svo má segja,“ sagði Friðjón. Það væri þó hrollvekjandi.
„Svo þegar maður hugsar um hvaða afleiðingar það hefði fyrir land og þjóð. Fyrir þig og ykkur. Þá finnst mér það hrollvekjandi tilhugsun. Ég vil ekki fá eitthvað Reykjavíkurmódel í landsmálin.“
Hann vill því ekki sjá Samfylkinguna, Vinstri græn, Viðreisn og Pírata saman í ríkisstjórn.
„Guð minn góður hvað það tók mig langan tíma að komast hingað uppeftir [á Suðurlandsbraut] úr Kvosinni af því að það er allt í hassi hérna í framkvæmdum. Og rekstur borgarinnar er í hassi og svo framvegis. Mér finnst það hræðileg tilhugsun að fá Reykjavíkurmódelið með öllum sínum vanköntum í stjórn landsins,“ sagði Friðjón. „Líttu bara á allt ruglið sem hefur verið í gangi.“