Fráleitt að fall sdg veiki flokkinn

Það er fráleit skýring að halda því fram að Framsóknarlokkurinn hafi hríðfallið fylgislega vegna þess að Sigmundur Davíð sé ekki lengur forsætisráðherra.
Þetta segir einn trúnaðarmanna Framsóknarflokksins, Jóhannes Gunnar Bjarnasson grunnskólakennari, fyrrum oddviti framsóknarmanna á Akureyri og bæjarfulltrúi í samtali við Hringbraut.


Hringbraut bar undir hann pistil á Eyjunni sem áhöld eru um hvort Björn Ingi Hrafnsson útgefandi hafi skrifað. Þar er því haldið fram að fylgisfall Framsóknar niður í tæp 7% sé afleiðing þess að Sigmundur Davíð hafi stigið til hliðar.

\"Orðið á götunni er að framsókn finni nú í fyrsta sinn fyrir því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sé hættur sem forsætisráðherra og annar tekinn við,\" segir í nafnlausa pistlinum á eyjan.is undir fyrirsögninni: \"Brotthvarf SDG veikir framsókn\".

\"Þetta er fráleit skýring. Flokkurinn tapar fylgi vegna framgöngu SDG en ekki vegna brotthvarfs hans,\" segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, framsóknarmaður á Akureyri.
\"Fylgið kemur trúlega ekki aftur fyrr en hann hættir sem formaður,\" bætir Jóhannes við.


Spurður hvernig honum líði með að sjá sinn gamla flokk sem skartar nú 19 þingmönnum en myndi fá fimm ef genmgið yrði til kosninga í dag skv. Gallup, að hann hafi upplifað \"bjórfylgi\" áður. \"Til að bæta við þarf að láta verkin tala. Ég er mjög bjartsýnn á að það geri sig. Samkrull stjórnarandstöðu veikir hana og það er undarlegt ef sjóræningjarnir ætla að bjarga báðum Samfylkingunum frá sinni dapurlegu stöðu,\" segir Jóhannes Gunnar Bjarnason.