Frakkar ætla að stefna bandarísku tæknirisunum Google og Apple fyrir verslunarrétti í París fyrir svívirðilega viðskiptahætti.
Bruno Le Maire, fjármálaráðherra Frakklands, tilkynnti þetta í útvarpsviðtali í morgun. Hann segir fyrirtækin stunda einokunartilburði gagnvart frönskum hugbúnaðar- og nýsköpunarfyrirtækjum með einhliða verðlagningu og samningsbindingum.
Verði Apple Inc. og móðurfyrirtæki Google, Alphabet Inc. fundin sek geta þau þurft að greiða milljónir evra í sektir.
Time Berners-Lee, sem kom veraldarvefnum upphaflega á laggirnar, sagði í viðtali á 29 ára afmæli vefsins á mánudag, að skortur á opinberu eftirliti og einokun tæknirisanna væri að gera út af við veraldarvefinn eins og við höfum þekkt hann.