Einn dáðasti og mikilvirkasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Gunnar Þórðarson er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli á Hringbraut í kvöld og fer þar yfir feril sinn allt frá stofnun Hljóma til skrifa á óperuverkum á seinni árum. Gunnar er nýorðinn sjötugur og fjallar meðal annars um stofnun Hljóma í viðtalinu sem er í senn hisupurslaust, einlægt og mjög opinskátt. Hann minnist þess þegar Rúnar Júlíusson kom inn í Hljóma; þá sem þar voru fyrir hafi einfaldlega vantað bassaleikara og hljóðfærið hafi verið hengt um háls Rúnna sem aldrei fyrr hafði plokkað strengi og svo hafi Gunni skrifað stafi á blað sem Rúnni hafi átt að spila eftir. Fyrir vikið hafi Rúnni snúið baki í áhorfendur á fyrstu giggunum til að lesa hvað hann átti að spila.
Fráfall Rúnars var Gunnari mikið áfall, "algjört sjokk," eins og hann segir en þeir hafi verið miklir vinir og nánast óaðskiljanlegir á hverjum degi frá níu ára aldri fram að þrítugu. Slest hafi upp á vinskapinn vegna fjárhagsmála seint á áttunda áratugnum en gróið hafi um heilt og engan vin eigi hann dýrmætari í safni sínu.
Rætt er og ítarlega um feril Hljóma þegar almennt var sofið eftir ball í svefnpoka uppi á sviði, svo og stofnun Trúbrots og vímuna á þeim árum öllum.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld.
Horfðu á klippur úr þættinum hér: