Frændi putins þvoði fé í danske bank

Fjölskylda Putins Rússlandsforseta og aðilar tengdir rússnesku leyniþjónustunni FSB virðast hafa stundað stórfellt peningaþvætti í gegnum Danske Bank, að því er uppljóstrari tjáði yfirstjórn bankans í árslok 2013.

Berlinske Tidende birti frétt um málið í gær, en hingað til hafði aðeins verið viðurkennt af hálfu bankans að komið hefði í ljós að regluverk gagnvart peningaþvætti í Eistlandi hefði ekki reynst fullnægjandi.

Samkvæmt fréttinni virðist peningaþvættið hafa verið umfangsmikið og féð látið renna gegnum reikninga nokkurra fyrirtækja í Eistlandsútibúinu, sem höfðu óljóst eignarhald. Við nánari skoðun hafi svo komið í ljós að Igor Putin, frændi Rússlandsforseta og aðilar tengdir æðstu stjórn FSB hafi tengst þessum fyrirtækjum.

Samkvæmt fréttum Bloomberg News og The New Yorker eru Igor Putin og sömu FSB aðilar jafnframt sagðir tengjast peningaþvætti frá Rússlandi gegnum Deutsche Bank, sem þýski bankinn var sektaður um stórar fjárhæðir fyrir í fyrra. Samkvæmt frétt The Guardian eru þessir peningaflutningar alls sagðir hafa numið allt að 20 milljörðum dala á árunum 2010-2015 og gengið undir nafninu Global Laundromat.