Frægur kardináli fordæmir silju dögg

Reinhard Marx, kardínálinn í München og einn af nánustu ráðgjöfum Frans páfa og formaður Samtaka biskup í löndum Evrópusambandsins, fordæmir fyrirhugað umskurðar-frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins sem kveður á um bann við umskurði drengja.
 
Kardinálinn segir frumvarpið vera hættulega atlögu að trúfrelsinu, en evrópskir rabbínar hafa einnig hvatt til þess að íslensk stjórnvöld verði beitt þrýstingi til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði samþykkt. Samkvæmt frumvarpinu yrði umskurður drengja, nema af heilsufarsástæðum, bannaður og allt að sex ára fangelsi lægi við brotum gegn slíkri löggjöf.  Í frumvarpinu segir að það sé vissulega réttur foreldra að veita barni sínu leiðsögn þegar kemur að trúarbrögðum en slíkur réttur geti aldrei gengið framar rétti barnsins.
 
Í frétt Crux Now, einni kunnustu fréttaveitu Bandaríkjanna af málefnum kaþólsku kirkjunnar, er vitnað í yfirlýsingu frá Marx þar sem fram kemur að það sé gott og gilt markmið hjá hverju samfélagi að vernda réttindi barna: \"En í þessu tilviki er verið að úthýsa ákveðnum trúarbrögðum án þess að hafa fyrir því nokkur vísindaleg rök og það er mikið áhyggjuefni,“ segir í yfirlýsingu Marx, en fréttavefurinn ruv.is greinir frá þessum kaþólska ótta í morgun.