Í nýjum þáttum Ásdísar Olsen sem sýndir verða klukkan 20:00 á miðvikudagskvöldum á sjónvarpsstöð Hringbrautar verður fjallað um allt falið og fordæmt.
Ástarfíkn, kraftaverk, siðblinda og vitundarvíkkandi efni eru á meðal umfjöllunarefna Ásdísar Olsen í nýjum sjónvarpsþætti sem verður frumsýndur hér á Hringbraut í kvöld. Þátturinn heitir Undir yfirborðið og í kvöld verður kafað djúpt eftir því sem er að gerast í andlegu undirheimunum!
Sí stækkandi hópur íslendinga notar vitundarvíkkandi efni til að flýta fyrir þroska sínum. Við erum að tala um s.k. DMT efni sem eru meðvitundarvíkkandi, sem örva framleiðslu gleðihormónsins serotonin, sem auka skynnæmni og valda jafnvel ofsskynjunum. Fólk lýsir stórkostlegri guðlegri reynslu, aðrir tala um vitundarvakning sem breytir öllu og sumir segjast hafa losnað við allan ótta! Allir virðast upplifa opinberun eða vitundarvakningu sem breytir allri sýn á lífið og tilveruna --- sem færir fólk nær sjálfu sér, kærleikanum og náttúrunni.
Er hugsanlegt að Ayahascha teið, sem indjánar hafa notað í hundruði ára til að sækja sér visku, geti leyst vanda okkar vesturlandabúa --- geti bætt líf okkar hér á jörðinni, aukið hæfni okkar til að lifa í sátt við dýr og menn og í takt við náttúruna og geti jafnvel læknað sjúka?
Í þættinum veltir Ásdís því fyrir sér hvort hún eigi að prófa að taka sjálf inn Vitundarvíkkandi efni og svarar þeirri spurningu í lok þáttarins.
Fyglstu með á sjónvarpsstöð Hringbrautar klukkan 20:00 í kvöld.