Frábært færi í hlíðarfjalli

\"Það er ekkert páskahret í ár enda eru páskarnir í mars. Við búumst við fjölda fólks til Akureyrar og það er þegar kominn mikill fjöldi segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.

Guðmundur Karl segir að páskahelgin sé \"verslunarmannahelgi vetrarins\". Þar hafi í dag verið frábært skíðafæri í dag og horfi vel með næstu daga.

Víða er góða sögu af öðrum skíðasvæðum að segja og eru landsmenn á faraldsfæti.