Laugardagsþáttur Þjóðbrautar, í útvarpi Hringbrautar, hefst í beinni útsendingu klukkan 10:00. Umsjón með þættinum hefur Sigurjón M. Egilsson.
Hann mun fjalla um margt í þætti dagsins. Ásmundur Friðriksson hefur áhyggjur af að ekki er búið að mynda ríkisstjórn. Það er rétt hjá Ásmundi að þetta er ekki gott ástand og það þarf að ráða fram úr því. Ásmundur verður fyrsti gestur þáttarins.
Flokksbróðir Ásmundar, Óli Björn Kárason, er gagnrýnin á Seðlabankann og vaxtastefnu hans. Rætt verður við Óla Björn um þá afstöðu hans, nú þegar Seðlabankinn hefur lækkað vexti og tekið þátt í lengsta stöðuleikatímabili efnahagssögu þjóðarinnar.
Framsókn fagnaði eitt hundrað ára afmæli í gær. Birgir Guðmndsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, þekkir vel til sögu Framsóknarflokksins, bæði eldri söguna sem og þá nýjustu. Birgir verður í viðtali um Framsóknarflokkinn.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, talaði tvisvar á Alþingi í vikunni. Hún talaði um borgarastríðið í Sýrlandi og eins um það ástand sem hér er með starsfsstjórn, stjórn sem er í raun rústir fallinnar ríkisstjórnar. Rósa Björk verður í viðtali í þættinum.
„Að auki ætla ég að ybba gogg hér og þar,“ segir Sigurjón og leggur til að við tökum daginn snemma og sofum svo út á sunnudaginn.
Hægt er að hlusta á hringbraut.is, og þessar eru tíðnir útvarpsins;
89,1 - Reykjavík
91,7 - Blönduósi
91,1 - Sauðárkróki
89,9 - Egilsstöðum
89,9 - Selfossi
87,7 - Akureyri