Sjónvarpskonan Sirrý verður að vanda á menningarsprangi sínu á fimmtudagskvöldi á Hringbraut, en að þessu sinni spannar þátturinn Lífsins list allt frá landnámi til okkar daga.
Í þætti kvöldsins verður litið inn á Landnámssýninguna í Aðalstræti sem er sjóðheitur reitur því 300 þúsund gestir hafa heimsótt þessa vinsælu sýningu á undanliðnum árum. Jón Páll Björsson sagnfræðingur segir frá því sem fólki finnst merkilegast að sjá og upplifa innan um handritin og rústir.
Og Sirrý og Friðþjófur Helgason myndatökumaður stigu svo aftur inn í nútímann og skelltu sér á Drekasvæðið í Skólavörðuholtinu í Reykjavík. Mannlífið er blómlegt á Drekasvæðinu svokallaða en það er svæðið við söluturninn Drekann á Njálsgötu þar sem er lifandi torg, margverðlaunað kaffihús og ítalska ísbúðin Paradís eru til húsa.
Einnig kemur karlakórinn Ernir á Vestfjörðum við sögu en kórinn var að senda frá sér disk nýlega.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld og einnig aðgengilegur á hringbraut.is