Frá amsterdam til norður kóreu

Í þættinum Ferðalagið í kvöld verður m.a. rætt um “massatúrisma” í íbúðhverfi miðborgarinnar. Hvað upplifa íbúarnir og er komið nóg? Runólfur Ágústsson og Benóný Ægisson ræða það við Sigmund Erni. Gerður Pálmadóttir “í Flónni” var búsett í Amsterdam um langt árabil og segir frá borginni sem hún gjörþekkir.

Rætt er við Þorvald Friðrikssson hjá Söguferðum um hópferð sem hann skipulagði til Norður Kóreu fyrir ári síðan. Hann skipuleggur nú aðra ferð. Ferðafréttir vikunnar verða á sínum stað.

Síðast ekki síst heyrum við af hópferðum í Hörpu. Elsa Waage óperusöngkona segir Lindu frá leiðangrum sem hún fer í með hópa um Hörpu en erlendir gestir eru frá sér numdir sumir af hrifningu, segir Elsa.

Ferðalagið er á dagskrá kl.21 í kvöld og endursýnt á sunnudag. Umsjónarmenn eru Sigmundur Ernir og Linda Blöndal.