Jóhann Þorvarðarson, á Miðjunni, bendir á afar áhugaverða staðreynd um fjölskylduhagi Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi Seðlabankastjóra. Þaðan koma 5% allra dómara landsins.
Hann bendir á að samkvæmt stjórnarskránni eigi dómstólar að vera óháðir og óhlutdrægir. Dómur MDE frá því í gær um hlutafjáreign dómara taki einmitt mið af þessu ákvæði stjórnarskrárinnar.
„Frá ættsveit Davíðs Oddssonar koma 5% allra dómara landsins. Tveir eru börn bróður Davíðs þau Börkur Þorvaldsson dómari við Hæstarétt og Hervör Þorvaldsdóttir forseti og dómari við Landsrétt.
Síðan er það einkasonur Davíðs hann Þorsteinn sem dæmir við Héraðsdóm Reykjaness. Þannig að fjölskyldutengsl Davíðs ná yfir öll dómstigin þrjú. Það gætu verið um meiri ættartengsl, en þá þekki ég ekki til þeirra.“
Hann bendir á að um sé að ræða 0,0008% landsmanna. „Þannig að vægi fjölskyldu Davíðs er rúmlega 6 þúsund falt á við þá fjölskyldu sem engan dómara hefur innan dómskerfisins.“
Hann spyr að lokum:
„Er þessi skipan eitthvað eðlileg og er hún í anda Stjórnarskrár landsins?“
Frá ættsveit Davíðs Oddssonar koma 5% allra dómara landsins
Fleiri fréttir
Nýjast