Fastafulltrúar 27 ríkja Evrópusambandsins (ESB) ákvaðu sl. mánudag að ekkert yrði gefið eftir gagnvart Stóra-Bretlandi um lögsögu Evrópudómstólsins yfir breskum þegnum og fyrirtækjum eftir útgöngu (Brexit)
Þetta er gert til að gera samningamönnum Breta ljóst að öll mál sem kunna að rísa fyrir útgöngu (Brexit) úr ESB skulu lúta lögsögu Evrópusdómstólsins og þau skuli þar af leiðandi lögð fyrir dóminn.
Þetta kann að merkja að einum fjórum aðlögunar árum eftir útgöngu Stóra-Bretlands lúta breskir þegnar og bresk fyrirtæki lögsögu Evrópudómstólsins.
Mál þau sem dómstólinn úrskurðar um tekur allt frá þremur og upp í fimmtán ár að dæma í.
Theresa May forsætisráðherra Stóra-Bretlands leggur á það áherslu að Stóra-Bretland losni sem allra fyrst og fyrir fullt og allt undan lögsögu Evrópudómstólsins. Slíkt er sennilega ekki í boði af hálfu ESB.
Nánar www.politico.eu