Sveitastelpan austan úr Nesjum sem varð á dögunum formaður Öryrkjabandalags Íslands ræðir á einstaklega opinskáan hátt um ævi sína og örlög í Mannamáli í kvöld, en fyrir rífum áratug lamaðist hún fyrir neðan brjóst sem breytti lífi hennar að öllu leyti.
Þuríður Harpa rifjar upp vordaginn þegar hún fór á óþægri meri út í Hegranes í Skagafirði og hentist þar af baki þegar óvænt styggð kom að hestinum, en hún vissi ekki þá að hún myndi aldrei standa upp aftur. Hún hélt lengi vel í vonina um að fá máttinn aftur í fæturna, en hún dofnaði eftir því sem árin liðu.
Hún ræðir af hreinskilni um skilnaðinn við eiginmann sinn sem höndlaði ekki breyttar aðstæður að hennar sögn - og hversdagslífið með börnunum sínum þremur og allar undurfurðulegu sögurnar af því hvernig var að takast allt í einu á við lífið í hjólastól, eftir að hafa farið um fótgangandi í 40 ár.
Og hún talar um breytta kynvitund, en það hafi komið henni mjög á óvart hvað margir ætla að fatlað fólk hafi ekki áhuga og löngun á kynlífi og aðrar manneskjur - og hér talar formaður Örykjabandalagsins af fádæma hispursleysi um sín persónulegustu mál; að vera álitin kynlaus eftir lömun.
Þátturinn var áður á dagskrá Hringbrautar í erli og önnum síðustu vikunnar fyrir jól - og er endursýndur í kvöld klukkan 20:30 vegna fjölda áskorana.
Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.