Lögregla fótbrotnaði í sinueldum

Lögreglumaður sem var að aðstoða slökkviliðsmenn höfuðborgarsvæðisins við að kveða niður sinuelda í Grafarvogi fótbrotnaði við störf sín í gærkvöld, en kveikt hafði verið í sinu á þremur stöðum í gærkvöldi og nótt.

Þurr sina liggur víða þar sem frostbreiðan er ekki fyri jörð á suðvestanverðu landinu og er eldhætta þar af leiðandi mikil. Fyrir utan eldinn í Grafarvogi var kveikt í sinu í Mosfellsbæ í gærkvöld, svo og á Kjalarnesi þar sem eldhafið varð mest.

Vart þarf að taka fram að mikil hætta getur stafað af eldum af þessu tagi, enda mannvirki ekki aðeins í hættu, heldur og fólk.