Landsliðið stærra en eyjafjallajökull

Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, komu í Þjóðbraut í morgun. Þær fóru mörgum fögrum orðum um gengi íslenska landsliðsins.

Hvað varðar landkynningu vegna liðsins segja þær hana mjög mikla og alla jákvæða. Bæði hvað varðar liðið sjálft og framgöngu stuðningsmanna.  Þeir nefndu þýðingu íþrótta og hversu miklu hlutverki þeir gegna, ekki síst við myndun sjálfsmyndar þjóða.

Ísland var á allra vörum þegar Eyjafjallajökull gaus. Þær meta árangur og framgöngu landsliðsins þannig að áhrif þess vegna séu meiri og merkari en sú athygli sem fékkst vegna gossins.