Skoðun og sýnataka í Fossvogsskóla leiddi í ljós að raka- og loftgæðavandamál voru til staðar í skólanum. Bæði nemendur og starfsfólk skólans hafa kvartað undan einkennum vegna þessa. Í ljósi þess hefur verið tekin ákvörðun um að loka skólanum eftir að skóladegi lýkur á miðvikudaginn kemur og verður skólinn opnaður að nýju í haust að endurbótum loknum. Þarf því að finna pláss fyrir þá 352 nemendur sem eru í skólanum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Um varúðarráðstöfun er að ræða á meðan endurbætur fara fram svo unnt sé að opna Fossvogsskóla að nýju í haust. Ákvörðunin er tekin á grundvelli skýrslna, með hliðsjón af áætlun um þær framkvæmdir sem ráðast þarf í og eftir samráð skólastjórnenda, fulltrúa foreldra, skólaráðs, heilbrigðiseftirlitsins, umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og skóla- og frístundasviðs.
Um tólf vikur eru eftir af skólaárinu og þarf því að finna pláss fyrir þá 352 nemendur sem eru í Fossvogsskóla. Nemendur í 4. bekk munu vera áfram í lausum kennslustofum á lóðinni en verið er að útvega húsnæði fyrir 1.-3. bekk og 5.-7. bekk. Það mun liggja fyrir á næstu dögum en markmiðið er að finna húsnæði sem næst Fossvoginum fyrir yngri börnin en útvega skólaakstur fyrir eldri nemendur ef þess þarf.
Hefðbundið skólastarf mun því fara fram í Fossvogsskóla frá deginum í dag til miðvikudags en skipulagsdagar skólans verða færðir til fimmtudags og föstudags í þessari viku og kennsla því falla niður. Mánudaginn 18. mars mun kennsla hefjast að nýju, en óráðið er ennþá hvar það verður.