Forystan er vandi bjartrar framtíðar!

Heiða Kristín Helgadóttir, einn stofnenda Bjartrar framtíðar, segir að vanda flokksins megi rekja til formannsins og annarra sem þar starfa. Hún hyggst ekki starfa fyrir flokkinn í náinni framtíð.

Rætt er við Heiðu Kristínu á vef Kjarnans, þar sem greint er frá því að hún er hætt með vikulegan umræðuþátt sinn, Umræðuna, sem sýndur var í Íslandi í dag á Stöð 2.

Heiða Kristín er varaþingmaður Bjartar Ólafsdóttur sem senn fer í fæðingarorlof, en hún hefur ekki áhuga á að taka sæti hennar þegar þar að kemur. Segir Heiða Kristín að eitthvað mikið þurfi að gerast hjá Bjartri framtíð til að henni finnist ákjósanlegt að stíga inn á þann vettvang aftur: \"Mér finnst vandi Bjartrar framtíðar vera inni í Bjartri framtíð, hann er ekki vandi kjósenda. Vandinn er ekki tilkominn vegna þess að kjósendur skilja ekki flokkinn heldur er hann vandi formannsins og þeirra sem starfa í Bjartri framtíð.\"

Fylgi Bjartrar framtíðar hefur verið á hraðri niðurleið undanfarna mánuði og síðast í morgun mældist flokkurinn með 4,4 prósenta fylgi í skoðanakönnun MMR sem myndi ekki nægja til þess að koma að manni á þing.