Faðir einars: forviða á uppreist æru atla

\"Hann hefur aldrei sýnt nokkra iðrun til okkar í þessu sambandi. Við höfum aldrei heyrt í honum,\" segir Birgir Örn Birgisson, faðir Einars Arnar Birgisson sem Atli Helgasonar lögmaður myrti í nóvember árið 2000.

Þessi orð lætur Birgir Örn falla í Fréttablaðinu í dag í ljósi þess að Atli hefur nú fengið uppreist æru, svo sem hann sóttist eftir að aflokinni rösklega áratugar afplánun í fangelsi, en fimm ár eru nú liðin frá henni eins og til þess svo sækja megi um endurheimta æru. Hún er forsenda þess að lögmenn - og raunar fleiri stéttir - geti endurheimt lögmannsréttindi sín.

Kastljós greindi frá uppreist æru Atla í gærkvöld, en Birgir Örn segir í Fréttablaðinu í dag að hann hefði ekki vitað af málinu áður en frá því var sagt í þættinum á RÚV: \"Þetta er bara eins og blaut tuska framan í andlitið á manni, það er ekkert öðruvísi,\" segir hann og bætir við: \"Hann hefur aldrei nokkurn tíma gert eitt eða neitt til að sýna iðrun. Mér finnst það bara vera í beinu framhaldi af því hversu útsmoginn hann var á meðan þetta var að ganga yfir,\" segir Birgir Örn í Fréttablaðinu og segir líklegt að fjölskyldan muni ekki láta þetta mál kyrrt liggja, en hún muni skoða það næstu daga hvernig hún geti haft áhrifá þennan framgang mála.

\"Ég get ekki ímyndað mér að það sé einhver akkur fyrir Lögmannafélagið að fá mann með þessa dómgreind,\" segir Birgir Örn í Fréttablaðinu í dag.