\"Í mínu ungdæmi þekktist það ekki að fólk væri með hausinn uppi í rassgatinu á sér, hvorki á hátíðum né hvunndags,\" skrifar rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson í sprellfjörugum pistli sínum á hringbraut.is.
Pistlar hans eru gersemi - og sá nýi er kostulegur: \"Menn gengu að vísu misjafnlega teinréttir og sumir bara nokkuð hoknir,\" rifjar hann upp \"og sjálfur hef ég til dæmis alltaf verið frekar í keng. Sú hollning hefur samt aldrei náð hringinn,\" skrifar hann ískrandi.
Og svo þetta: \"Nú virðast breyttir tímar. Borgarfulltrúi í Reykjavík hefur orðið var við það í sínu nærumhverfi að fólk sé með hausinn uppi í rassgatinu á sér. Þetta er nýlunda mér framandi og óþekkt í mínum kreðsum.\"
Hann er ekki einn um að skilja ekki framsóknarfólk: \"Af orðum borgarfulltrúans má merkja að þetta sé svo algengt og viðvarandi ástand hjá fjölda manns að hún er að gera sér vonir um að fólkið, sem svona rúllar um göturnar, nái – þó ekki sé nema einn dag á ári, að slíta höfuðið út úr þessum fæðingarvegi kúksins.\"
Guðmundi er misboðið, í meira lagi: \"Ég verð að segja, að ég kann ekki við svona talsmáta,\" en hann segir sorglegt að \"heyra upphrokaða stjórnmálakonu tala svona til samborgara sinna.\" Og segir loks um þetta margfræga framferði Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, annars borgarfulltrúa Framsóknarflokksins: \"Hún er til skammar – og þó með hausinn á réttum stað. Af myndum að dæma – sem gætu að vísu verið gamlar,\" segir í psitlinum.
Og talandi um mynd; Guðfinna er til vinstri á meðfylgjandi mynd.