Fólk með Sirrý fjallaði um unglinga og forvarnir í gærkvöld, en tilefnið er að skemmtifræðslan \"Hvað ef\" sem slegið hefur í gegn á meðal unglinga heldur upp á 10 ára afmælið sitt um þessar mundir.
Þáttinn er hægt að nálgast hér á hringbraut.is, en þar fór fram lífleg, skemmtileg og uppörvandi umræða um þennan mikilvæga málaflokk á forsendum unga fólksins.
40 þúsundunglingar víða um land hafa séð sýninguna sem er hörð fræðsla í bland við gott leikhús. Gunnar Sigurðsson leikstjóri, Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari, Thelma Marin Jónsdóttir leikari og söngvari í sýningunni hafa auk fjölda annarra unnið skemmtifræðsluna í samvinnu við unglingana sjálfa um mikilvæg atriði í lífi æskunnar í dag svo sem kynlíf, einelti, samskipti, vímuefni, sjálfsmynd og fleira.
Kristján Sigurðsson kennari á Stuðlum segir að sýningin virki, hún snerti fólk og fjalli um mikilvæga hluti. Foreldrum og unglingum stendur til boða að sjá sýninguna saman í Hörpu, 30.nóvember kl. 17:30, sér að kostnaðarlausu.
Kristján segir að einn mikilvægasti þátturinn í forvörnum sé samvera barna og foreldra: \"Það þarf ekki að vera skipulögð dagskrá heldur að vera saman, ekki hver í sínu horni í stóru húsi. Það er lykilatriði.\"
Flest allir krakkar eru stórkostlegir segir hann og bendir á að hærri prósenta unglinga þjáist af þunglyndi heldur en er í fíkniefnum og um það þarf að tala líka. Og það er einmitt gert í sýningunni ,,Hvað ef\" sem er til umræðu hjá Sirrý í kvöld.
Í síðari hluta þáttarins kynnumst við þeim Eik Arnþórsdóttur og Alexi Má Gunnarssyni en þau verða með nýja þætti fyrir og um unglinga á Hringbraut á næstunni.
Fólk með Sirrý er á dagskrá Hringbrautar öll miðvikudagskvöld.