Fortölur löggu fremur en vopnavald

Dr. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræðum, varar við því að lögreglan hér á landi fái auknar heimildir til að beita skotvopnum án þess að mjög skýr reglugerð liggi fyrir sem segi hvenær heimild sé gefin til að lögregla beiti vopnum og við hvaða aðstæður. Þá þurfi mjög markvissa þjálfun lögreglumanna fyrir slíkt.

Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut.

Helgi rakti stuttlega siði nokkurra ríkja. Hann nefndi sem dæmi að í Noregi og Hollandi væru mjög skýrar reglur um hvenær lögregla mætti beita vopnavaldi. Reglur væru ekki eins skýrrar í Svíþjóð og þar væri meira um slysaskot og neikvæðar afleiðingar vopnanotkunar en hjá lögreglu í Noregi.

Abrotafræðingurinn ræddi stuttlega þegar íslenska lögreglan beitti fyrst í 30 ára sögu sérsveitarinnar skotvopnum í Hraunbæ og varð manni að bana sem glímdi við andlega erfiðleika. Skapast geti aðstæður þar sem beita þurfi vopnavaldi en á móti komi að sumir sérfræðingar telji að aukin vopnavæðing innan lögreglu kalli að jafnaði á aukinn vopnaburð undirheimanna. 

Helgi leggur áherslu á að hefðbundin löggæsla, þolinmæði og fortölur, hafi reynst besta vopnið í almennri löggæslu hér á landi. Það sé auðlegð sem mikilvægt sé að varðveita, enda samfélagið okkar friðsælt.