Fortíðin leyst án framtíðarlausnar

Þorsteinn Pálsson segir í nýjum pistli sínum á hringbraut.is að gengi krónunnar í þeirri froðumyndun sem nú sé að byrja í hagkerfinu verði ekki varið nema með því að beita frekari takmörkunum á viðskiptafrelsi og vaxtahækkunum.


"Höftunum verður með öðrum orðum breytt. Þau geta bæði orðið lausari í böndunum eða fastari en nú er þegar fram í sækir. En þau hverfa ekki," skrifar þessi reynslumikli stjórnmálamaður og horfir yfir sviðið: "Í raun erum við því komin með krónuna aftur þar sem hún var á síðustu öld. Þá notuðu menn hvort tveggja gengisfellingar og misumfangsrík höft."


Honum hugnast ekki það sem er í vændum: "Ríkisstjórnin boðar nú að hún ætli að verja stöðugleikann með einhvers konar viðskiptatakmörkunum með krónuna fremur en að leyfa markaðnum alfarið að ákveða verðgildi hennar. Sennilega halda henni þó engin bönd á endanum."


Sannarlega hafi áætlun ríkisstjórnarinnar frá því á mánudag verið stór áfangi og mikilvægur til að hindra að slit þrotabúanna hefðu nýja kollsteypu í för með sér, en "eftir sem áður hefur engin framtíðarstefna í peningamálum verið mótuð sem  stuðlað getur að stöðugleika til lengri tíma og sterkari samkeppnisstöðu Íslands," skrifar Þorsteinn.


Pistil hans má nálgast í heild sinni á forsíðunni á hringbraut.is.