Í þættinum Afsal sem sýndur verður á Hringbraut klukkan 21.00 á fimmtudagskvöld, kemur fram að oft sé fortíðarsamanburður á fasteignakaupum ungs fólks fyrir tuttugu árum síðan miðað við í dag, eins og samanburður á eplum og appelsínum.
Þar telji margt til. Sem dæmi má nefna, hafa ýmiss lánakjör batnað fyrir ungt fólk í dag miðað við það sem áður var. Áður fyrr var aðeins lánað fyrir 70% en í dag fær fólk 85% lán ef verið er að kaupa fyrstu eignina. Mismunur á útborgun sé því ekkert alltaf jafn mikill og fólk vill vera láta, auk þess sem ýmiss lánakostnaður hefur verið felldur niður, sem áður þurfti að greiða. Ásdís Valsdóttir hjá Húsaskjól og Guðrún Antonsdóttir hjá Garún fasteignamiðlun segja sparnað hins vegar lykilatriði auk þess sem það vanti fleiri smærri og ódýrari íbúðir. Bifreiðakostnaður geti til dæmis verið fljótur að telja á meðan það sé sjálfsagt að ungt fólk sé með snjallsíma og net eins og aðrir.
Í þættinum er einnig rætt við Ara Skúlason, hagfræðing hjá Landsbankanum. Hann segir fasteignaverð fara hækkandi og það sé einkenni íslenska markaðarins um þessar mundir. Vel þurfi að huga að nýbyggingum næstu árin, en þar skortir það helst að ekki er verið að byggja það húsnæði sem unga fólkinu vantar hvað mest, til að geta keypt sína fyrstu eign. Ari segir kröfurnar meiri í dag en áður og því sé oft verið að bera saman epli og appelsínur þegar fortíðarfasteignakaup eru borin saman við fasteignakaup í dag. Þar spili aukin gæði fasteigna inn í, enda hefur regluverk breyst og kröfur um gæði meiri en áður tíðkuðust. Þá sé það algengara í dag að fólk kaupi fullbúnar íbúðir sem fyrstu eign, miðað við það sem áður var.
Rakel Sveinsdóttir rýnir í fasteignamálin og ræðir við sérfræðinga um fasteignakaup frá ýmsum sjónarhornum öll fimmtudagskvöld klukkan 21:00 á Hringbraut.