Forstjórinn situr í fílabeinsturni!

Rithöfundurinn og þjóðmálarýnirinn Guðmundur S. Brynjólfsson er í meira lagi gáttaður á orðum forstjóra Kauphallarinnar í þá veru að umræðan ein um \"Arion-Síma-sukkið\" sýni merki heilbrigðis á markaðnum.

\"Þetta er merkileg sjúkdómsgreining, allt að því lýðheilsufræði,\" skrifar Guðmundur um orð forstjórans sem hann lét falla í gær eftir að alda hneykslunar reið yfir samfélagið um að útvaldir fengju að kaupa á undan öðrum í Símanum á sérkjörum.

Guðmundur er kannski ekki orðlaus, en gáttaður sem fyrr segir: \"Það er auðvitað ekki neitt heilbrigðisvottorð á græðgi og spillingu að menn ræði græðgi og spillingu – sérgæsku og auviðileg hagsmunatengsl. Ekki frekar en að það útskrifar af líknardeild þann dauðvona, og gefur heilbrigðisvottorð, að rætt sé um ristilkrabba, blóðkrabba og húðkrabba,\" skrifar hann í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is.

\"Þetta er þvæla,\" bendir rithöfundurinn á og segir að forstjóri Kauphallarinnar vilji ekki skilja samfélagið: \"... hann situr í fílabeinsturni og heldur að menn séu einna helst að drekka púrtvín og ræða fyrirkomulag; hann lætur sem umræðan í samfélaginu [les. reiðin] hverfist um tæknileg atriði og viðskiptafræðilegar spekúlasjónir. Það er auðvitað rangt – og ég hef grun um að hann viti að það sé rangt; en hann hefur hag af því að þykjast ekki vita betur enda lætur hann þess getið að hann trúi því að þetta Arion-Síma-sukk muni „ekki veikja skráningu Símans á markað“,\" skrifar Guðmundur, gáttaður.