Ólafur Örn Jónsson skipstjóri telur það koma úr hörðustu átt að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, saki Seðlabankann um mannréttindabrot og hyggist í þeim efnum leita réttar síns, jafnvel með málsókn.
Í bloggpistli Ólafs skipstjóra segir að Þorsteinn Már eigi sjálfur langan feril ofbeldis og misbeitingar valds. Hann hafi sem dæmi árið 1996 sett netagerð á Íslandi í viðskiptabann vegna ályktunar frá Samtökum Iðnaðarins. Hann hafi síðan 1998 farið fyrir hópi útgerðarmanna í sama tilgangi upp í sömu netagerð og krafist að Ólafur yrði rekinn frá fyrirtækinu vegna afskipta af stjórnmálum annars yrðu öll viðskipti við fyrirtækið stöðvuð. Í mörgum öðrum tilvikum hafi Þorsteinn Már haft samband við fólk í sjávarútvegi og hótað þeim eða rekið þá úr starfi og komið í veg fyrir að þeir fengju starf í sjávarútvegi eða tengdum greinum.
Hringbraut hafði samband við Ólaf og bað hann um að nafngreina netagerðina og veita frekari rökstuðning fyrir þungum orðum sínum. Ólafur segir að um ræði Hampiðjuna. Félag iðnrekenda hafi samþykkt ályktun um kvótann og neikvæð áhrif hans á atvinnulífið fyrir hartnær tveimur áratugum „Mái [Þorsteinn Már] varð svo reiður út í Gunnar Svavarsson forstjóra Hampiðjunnar og formann Samtaka iðnaðarins á þessum tíma ađ hann hætti að kaupa Gloriu troll hjá fyrirtækinu.“
Ólafur segist sjálfur hafa gagnrýnt kvótakerfið persónulega en hafi heyrt árið 1996 að hann væri kominn á \"dauðalista\" LÍÚ eins og hann orðar það. Starfslok hans á sjó innan við ári seinna megi rekja til blaðagreinar í Morgunblaðinu sem hann skrifaði gegn kvótakerfinu og afleiðingum af frjálsa framsalinu.
\"Árið 1998 tók ég þátt í stofnun Frjálslynda flokksins og tók þá þátt í auglýsingum þar sem sagður var sannleikurinn um kvótakerfið. Eftir birtingu fyrstu auglýsingarinnar var ég kallaður á teppið og sagt að hópur útgerðarmanna - seinna kom í ljós undir stjórn Þorsteins Más - hótaði að hætta öllum viðskiptum við Hampiðjuna yrði ég ekki þegar í stað rekinn,\" segir Ólafur.
Skipstjórinn segist hafa gengið að því að taka ekki þátt í stjórnmálastafi, og láta ekki hafa neitt um útgerðarmál eftir sér. Hann hafi haldið það heit í 12 ár. Æ síðan hafi Þorsteinn Már notað \"ofurauð sinn\" til að koma í veg fyrir að Ólafur sinni skipstjórn. Fleiri dæmi af öðrum sjómönnum megni nefna. Í þessu sögulega ljósi sé áhugavert að forstjóra Samherja sé svo umhugað nú um eigin mannréttindi vegna Seðlabankamálsins.
Hringbraut hefur leitað svara hjá Þorsteini Má og Samherja vegna orða Ólafs Arnar Jónssonar skipstjóra en án árangurs.