Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, segir í samtalið við Hringbraut, að stýrihópur sem hann stýrði hafi aldrei gefið þá ráðgjöf til Vegagerðarinnar að notast við Roundup illgresiseyðinn. Jón Gunnar stýrði stýrihópnum ásamt Sveini Runólfssyni, fyrrverandi landgræðslustjóra. Í samtali við Hringbraut segir Jón Gunnar að Vegagerðin sé að ljúga í svörum sínum til Hringbrautar vegna málsins.
„Ég get algjörlega lofað því að ekkert svona bréf fór til Vegagerðarinnar. Það er ekki til og var aldrei til. Þetta er bara lygi. Náttúrufræðistofnun Íslands né stýrihópurinn hafa aldrei mælt með notkun á Roundup við nokkurn aðila. Ég get ekki svarað fyrir hvað Landgræðslan hefur gert, það veit ég ekkert um. Það var ekkert gert án samráðs við mig innan stýrihópsins.“
Í færslu á Facebook svæði sínu segir Jón Gunnar að frétt Hringbrautar hafi verið falsfrétt. Þá sagði Jón Gunnar að hann hafi reynt að ná í blaðamann Hringbrautar en ekki náð sambandi við hann. Kom í ljós eftir samtal við Jón Gunnar að samstarfsmaður hans hafi tekið niður rangt símanúmer þegar blaðamaður skildi eftir skilaboð um þess efnis að hafa samband við sig. Hann segir að stýrihópurinn hafi átt einn fund með Vegagerðinni og aldrei hafi komið fram neitt um að notast við illgresiseyðinn Roundup.
Þegar blaðamaður Hringbrautar sendi beiðni til G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, þess efnis að fá bréf stýrihópsins til Vegagerðarinnar benti hann á umhverfisráðuneytið. Þegar umhverfisráðuneytið sagðist ekki vera með neitt bréf undir höndum var aftur haft samband við G.Pétur. Sagði hann þá að ekki hafi verið um bréf að ræða heldur mögulega tölvupóst eða símtal.
Þegar Jón Gunnar var spurður hvað honum finnist um svör Vegagerðarinnar segir hann:
„Mér finnst skrýtið að menn séu að segja eitthvað sem er ekki rétt.“
Hér að neðan má lesa Facebook færslu Jóns Gunnars vegna fréttar Hringbrautar um málið.
„Var að lesa ótrúlega falsfrétt á Hringbraut.is um að Náttúrufræðistofnun hefði hvatt til þess að Vegagerðin færi í mikla eiturherferð gegn lúpínu með roundup. Og sagt að ekki hafi verið hægt að ná í mig \"þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir\". Fékk skilaboð klukkan rúmlega þrjú í dag að Bjartmar blaðamaður Hringbrautar hefði hringt og vildi ná í mig \"áríðandi\". Hringdi strax í hann, en fékk símsvara. Ítrekaðar tilraunir mínar til að hringja í hann báru engan árangur! Og svo les ég þessa ótrúlegu falsfrétt á Hringbraut.is sem á sér enga stoð. Reynt með ómerkilegum hætti að koma höggi á mig, Svein Runólfsson fyrrverandi Landgræðslustjóra og Svandísi Svavarsdóttur fyrrverandi umhverfisráðherra. Gruna undan hvaða rifjum þetta er runnið, en segi ekki meira.“