Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er með réttarstöðu sakbornings í máli sérstaks saksóknara. Þetta kom fram þegar hann bar vitni í Stím-málinu í dag en ekki kom fram hvaða mál ræðir um.
Köldu virðist hafa andað milli Þorsteins Más og ákæruvalds. Þorsteinn Már var formaður stjórnar Íslandsbanka á sínum tíma fyrir hrun auk þess sem aðkoma Samherja að félaginu Stím er til skoðunar fyrir dómi. Í dómsal í dag svaraði Þorsteinn Már dómara að fráleitt væri að spyrja um atvik sem gerðust fyrir níu árum.
Fram kemur á ruv.is sem hefur látið fréttamann fylgjast með aðalmeðferð Stím-málsins síðustu daga, að Símon Sigvaldason dómari hafi byrjað eins og í öðrum skýrslutökum, á að gera Þorsteini Má grein fyrir að refsivert væri fyrir vitni að segja ósatt. Hann hafi bætt við að Þorsteinn Már hefði réttarstöðu sakbornings í máli sem væri til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
„Þorsteinn Már gæti því skorast undan því að svara tilteknum spurningum ef hann teldi sig vera að fella á sig sök í því máli með því að svara spurningunum. Ekki kom fram í hvaða máli Þorsteinn Már hefði réttarstöðu sakbornings,“ segir í frétt Rúv sem lesa má í heild hér.