Forstjóri icelandair vill meira út úr starfsfólki sínu

Forstjóri Icelandair segir fyrirtækið hafa einblínt of á vöxt í stað arðsemi og vill meira út úr starfsmönnum sínum.

Þetta segir Bogi Nils Bogason í viðtali við breska tímaritið Financial Times þar sem er sagt frá því að fyrirtækið hafi skilað tapi árið 2018 sem er í fyrsta sinn í áratug sem það gerist.

„Frá árinu 2009 höfum við einblínt mikið á vöxt fyrirtækisins en þegar þú gerir það þá ertu ekki að beina sjónum þínum að kostnaði,“ er haft eftir Boga.

„Við erum að borga flugmönnunum og áhöfn vélanna góð laun en það er tækifæri til að ná meira út úr því,“ segir forstjórinn.

Nánar á


https://www.visir.is/g/2019190409373