Forstjóri hörpu fékk 20% launahækkun

Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu hækkaði um rúm 20 prósent í launum á síðasta ári, samkvæmt ákvörðun stjórnar hússins. Hækkunin kom til skömmu eftir að ákvörðunarvald launa forstjórans var fært frá kjararáði. Í febrúar í fyrra hafði kjararáð ákvarðað forstjóranum 1,3 milljónir króna í mánaðarlaun. Stjórnin hækkaði hins vegar launin í 1.567 þúsund krónur á mánuði.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Í fréttinni kemur fram að í nýbirtum ársreikningi Hörpu sjáist að laun og launatengd gjöld til forstjóra Hörpu höfðu hækkað nokkuð milli áranna 2016 og 2017 og umfram það sem nemur þeim launum sem kjararáð ákvarðaði þáverandi forstjóra þann 13. febrúar 2017.

Forstjóraskipti urðu hjá Hörpu þann 1. maí í fyrra þegar Svanhildur Konráðsdóttir tók við af Halldóri Guðmundssyni sem verið hafði forstjóri í fimm ár. Launakjör Svanhildar voru þá þau sömu og kjararáð hafði ákvarðað Halldóri.