„Meginhugmyndafræðin að baki sameiningunni er að styrkja starfið sem snýr að fjármálastöðugleikamálum. Það hefur verið mjög mikið unnið á seinni árum í því samkvæmt sérstökum lögum. Fjármálastöðugleikaráð og kerfisáhættunefnd voru stofnuð með lögum og það hefur verið svona formlegt og mikið samstarf. Þarna er verið að stíga ennþá sterkara skref inn í samstarfið á milli þess sem við köllum eindaeftirlit, sem Fjármálaeftirlitið hefur hlutverk með, og síðan þjóðhagsvarúðar hlutverkið, sem er Seðlabankinn. Auðvitað eru væntingar til þess að með því að við tilheyrum öll sömu stofnuninni og vinnum þannig enn nánar saman að það styrki þetta einmitt enn frekar.“
Þetta segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, og vísar til áforma um sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Vinna við sameiningu hófst í október í fyrra og verkefnisstjórn um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit ber að skila drögum að lagafrumvarpi til ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins eigi síðar en á morgun, 28. febrúar.
Unnur er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hún ræðir sameininguna. Hún kveðst jákvæð í garð sameiningarinnar og segir að FME muni taka þátt í öllum undirbúningi að henni af heilindum. Í viðtalinu ræðir hún einnig ný heildarlög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og tillögur sem er að finna í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið.
FME mun áfram sinna eftirlitshlutverki sínu með bönkunum, tryggingafélögunum og þeim stofnunum sem taka við innlánum en Unnur ítrekar að FME og Seðlabankinn, sem hefur í meiri mæli haft heildarsýn á fjármálakerfið, myndu þurfa að vinna saman. „Í hugmyndunum að þessari breytingu þá verða með skýrum hætti þrjár meginstoðir; peningastefnustoðin, fjármálastöðugleikastoðin og fjármálaeftirlitsstoðin. Þetta þarf að vinna saman og það þarf að vera skilningur á áhrifum fyrirtækjanna inni, og þetta er líka verðbréfamarkaðurinn og lífeyrismarkaðurinn. Þetta eru allir markaðir og hvernig fjármálamarkaðurinn hreyfist.“
Nánar er rætt við Unni í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.