Ritstjórarnir Steingerður Steinarsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræða stöðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands í ljósi aflandsviðskipta Dorritar Moussaieff, eiginkonu hans í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld og eru sammála um að hann eigi að stíga til hliðar.
Málið sé fyllilega sambærilegt við hrakfarir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra sem varð að hrökklast frá embætti í ljósi aflandsviðskipta Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu hans í nýliðnum mánuði. Sagan sé nú að endurtaka sig á innan við mánuði.
Í samtali sínu við Sigmund Erni í kvöld segja þær það hafa verið mistök af hálfu Ólafs Ragnars að bjóða sig aftur fram og eru þar sammála þáttastjórnanda um að þar hafi forseti síðasta aldarfimmtungs sýnt þjóð sinni nokkrun skammt af yfirlæti.
Í þættinum verður rætt um orðspor Íslands úti í heimi vegna aflandsáráttu íslenskra ráðamanna, rýnt í einvígi aldarinnar millum Guðna Th. og Ólafs Ragnars, rætt um fylgissveiflur í pólitíkinni og sigurvegara íslenskrar þjóðmálaumræðu síðustu dægra, Kára Stefánsson.
Ritstjórarnir hefjast klukkan 21:15 í kvöld og eru endursýndur 23:15.