Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata gerði alvarlegar athugasemdir við afskipti forseta Íslands af störfum þingsins í gærdag, en hún telur hann með orðum sínum skipa þingheimi fyrir verkum.
Í ræðu sinni vísaði Birgitta til ræðu forsetans við þingsetningu í september í haust þegar Ólafur Ragnar Grímsson varaði við atkvæðagreiðslu um breytingar á stjórnarskrá samhliða forsetakosningum á næsta ári. Þar hafi verið um fyrirmæli til þingmanna að ræða. Og nú virðist sem vinna í stjórnarskrárnefnd sé komin í algjörar ógöngur.
\"Allaveganna er næsta ljóst að það verður ekki farið í þessar breytingar á stjórnarskrá samhliða forsetakosningum nema einhvers konar kraftaverk verði að veruleika og jafnvel þingmenn verði hér í vinnunni fram að áramótum því tíminn er búinn. Mér, langar bara að vekja athygli þingmanna á þessu þarna er forseti lýðveldisins að hafa bein afskipti af störfum þingsins í jafn veigamiklu máli og þessu og mér finnst það bara mjög alvarlegt,“ sagði Birgitta Jónsdóttir á Alþingi í gær.