Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, vill að ákvörðun kjararáðs um hækkanir launa helstu embættismanna verði hrundið. Hann skrifar um þetta í Fréttablaðið í dag þar sem hann segir ákvörðunina vera í versta falli lögbrot.
Í niðurlagi greinarinnar skrifar Jón: „Það eru þrír aðilar sem geta aftengt sprengjuna og bera því ábyrgð. Kjararáð getur gefið út annan úrskurð sem lækkar laun ráðherra og þingmanna (stjórnarskráin bannar launalækkanir Forseta Íslands). Forseti Íslands sem hefur sagt að hann: „vænti þess að þingið vindi ofan af þessari ákvörðun [Kjararáðs]“ getur gefið út að hann muni setja bráðabirgðalög áður en þing komi saman nema Kjararáð lækki launin eða hann fái það staðfest frá formönnum allra flokka að Alþingi muni vindi ofan af ákvörðuninni. Ef þessir þrír aðilar bregðast allir þá mun ég kæra ákvörðun Kjararáðs til dómstóla og hef nú þegar fengið til þess lögfræðing.“
Jón Þór verður gestur Þjóðbrautar sem verður á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.