Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, nýtti morguninn í að tína rusl í kringum Bessastaði. Hann greinir frá þessu á facebook síðu sinni. Guðni er óánægður með magn ruslsins sem finna má við Bessastaði og segir það synd að sumt fólki nenni ekki að tína upp eftir sig vegna leti.
„Sumt fýkur hingað eða rekur á fjörur með veðri og vindum. Öðru fleygir fólk greinilega bara úr bílum eða nennir ekki að taka heim með sér eftir göngutúra. “
Hann hvetur fólk til að gera betur. „Reynum að gera betur! Þú þarna úti: Það á ekki að vera hlutverk mitt eða annarra að hreinsa upp eftir þig, hvorki nú né í framtíðinni!“
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/forsetinn-segir-ruslaralyd-til-syndanna