Forsetinn sakaður um hræsni

Óhætt er að segja að „atkvæðaveiðar“ forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, eins og álitsgjafar hafa kallað þær, hafi vakið mikla athygli í gær. Einnig hefur verið spurt spurninga um hlutverk Rúv í málinu.

Fyrsta frétt Rúv í kvöldfréttum Sjónvarps fjallaði um aðkomu forsetahjónanna að fátækrahjálp en tíðindum sætir að Dorrit og Ólafur sjáist saman á Íslandi í seinni tíð.

Forsetinn gagnrýndi ráðstöfun fjármuna í viðtali við fréttamann Sjónvarps og hafði ekki fyrr sleppt orðinu en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sendi forsetanum kalda kveðju á Twitter.

Bjarni skrifaði: „Sýnist ÓRG vilja nýja forgangsröðun. Hvað með að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna?“

Ekki eru allir sammála um gildi yfirlýsingar Bjarna. Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður, segir: „Bjarni Ben ætti ekki að vera hreyta ónotum í forsetann á twitter, fyrir það eitt að Ólafur Ragnar leyfði sér að taka upp hanskann fyrir þá sem ekki eiga í sig og á.“

Lára Hanna Einarsdóttir samfélagsrýnir og bloggari sakar forsetann aftur á móti um hræsni:

„Forsetahjónin, sem eru meðal vellauðugustu Íslendinganna, gáfu sér tíma til að þeysa til Keflavíkur í dag til að gefa smáfuglunum fyrir kosningar. Nokkur atkvæði fengust þar, en ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna fréttamaður RÚV var á staðnum,“ skrifar Lára Hanna.

Hún leggur út af þessu: „Nú þykir nær öruggt að forsetinn hyggist sitja sitt fimmta kjörtímabil í embætti, enda telur hann engan núlifandi Íslending verðugan arftaka sinn. Búist er við að forsetafrúin láti sjá sig oftar á Íslandi næstu mánuði til að tryggja (fyrrverandi?) eiginmanni sínum örlítið fleiri atkvæði svo hann geti toppað þaulsetu nokkurra einræðisherra.“

Bjarni Ben fær einnig pillu frá Láru Hönnu:

„Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, tók orð forsetans illa upp, þrátt fyrir vitneskju um að hann meinti ekkert með þeim, og hótaði að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna. Bjarni, sem er mikill vinur fátækra, öryrkja og aldraðra (sic), sagði að nær væri að þeir hópar fengju þær 260 milljónir á ári sem forsetahjónin kosta skattgreiðendur.
...djók!“

Beittastur er broddurinn í ummælum Illuga Jökulssonar á facebook:

\"Hér eigast þeir einir sem ég hirði ekki um hverjir drepast, sagði Mörður Valgarðsson einu sinni. Ég segi hins vegar: Auðjöfrarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Bjarni Benediktsson mega alveg æpa sig hása um hlutskipti fátæklinga án þess að það komi par við mig. En tíst Bjarna Ben er samt áhyggjuefni. Eins og það er orðað, þá felst nefnilega í því hótun um að svipta Ólaf Ragnar sínu ríflega risnufé ef hann er með kjaft. Alveg væri mér sama þótt Ólafur Ragnar yrði að draga ögn úr veisluhöldum, en ráðherra sem hótar fólki - hvort sem það er forsetinn eða aðrir - hann er á mjög, mjög hættulegri braut.\"