Forsetinn reynir að sundra okkur!

\"Við báðum ekkert um styrk, við vissum ekkert um styrk, við fengum engan styrk og höfum ekki fengið krónu. Ég tók þriggja milljóna veð í minni íbúð til að geta haldið áfram með teiknisamkeppni fyrir moskunni,“ segir Salmann Tamimi, trúarleiðtogi múslima á Íslandi. 

Þetta kemur fram í föstudagsviðtalinu í Fréttablaðinu í dag, en þar vísar Salmann í orð Ólafs Ragnars Grímssonar sem sagði á dögunum ástæðu til þess að Íslendingar vöknuðu til vitundar um vandann sem fylgir öfgafullri íslamstrú; sem sé sá mesti frá tímum nasista. Sá vandi verði ekki leystur með barnalegri einfeldni og aðgerðum á sviði umburðarlyndis og félagslegra umbóta. Tilefni ummæla forsetans voru atburðirnir í París. 

Ólafur Ragnar sagði einnig við þetta sama tækifæri að hann hefði komist að því á fundi með fulltrúum erlends ríkis fyrir nokkru, að ríki sem vill rækta öfgakennt íslam vildi skipta sér af trúarbrögðum á Íslandi. Hafa ekki fengið styrk

\"Forsetaembættið gaf út yfirlýsingu á sínum tíma þegar Ólafur Ragnar hitti sendiherra Sádi-Arabíu sem tjáði forsetanum að þeir ætli að styrkja byggingu moskunnar um milljón dollara. Forsetabíllinn keyrði sendiherra á lóðina okkar og fór að skoða hana. Við vissum ekkert um það. Ég gaf yfirlýsingu þegar ég var spurður að þessu. Ég sagði: Hvar eru þessir milljón dollarar? Enginn kom til okkar,“ segir Salmann í viðtalinu. 

Salmann segist fyrst hafa heyrt af heimsókninni í yfirlýsingu forsetaembættisins og strax gefið út að það kæmi ekki til greina að taka við peningunum. „Við tökum ekki við peningum frá fasistaríki. Þótt okkur hefði verið boðnir milljón dollarar – þeir voru að tala saman og ég veit ekkert hvað fór þeim á milli – en af hverju segir forsetinn honum ekki að skipta sér ekki af þessu. Salmann segir forsetann stuðla að sundrungu en ekki sameiningu með þessum orðum sínum.

\"Forsetinn, sem á að vera sameiningartákn þjóðarinnar, er farinn að reyna sundra okkur í pólitískum tilgangi,“ segir hann og telur líka til forsætisráðherrann og umræðu í kringum borgarstjórnarkosningar. Ábyrgð stjórnmálamanna sé rík, þeir þurfi að gæta þess að ala ekki á hræðslu. Það geti haft afdrifaríkar afleiðingar: \"Mér finnst sóðalegt að pólitíkusar noti svona aðferðir til að ná í atkvæði, það finnst mér ekki heilbrigt. Það er verið að ala á hræðslu. Þeir eiga að vita að svona hræðsla er stórhættuleg. Það er með svona áróðri og svona hræðslu sem við komum Hitler til valda. Mörg vandamál í heiminum eru uppsprottin af þessari sundrungu,“ segir Salmann í athyglisverði föstudagsviðtali í Fréttablaðinu í dag.