Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands átti í gær fund með sendiherra Rússlands á Íslandi, Anton Vasiliev um stöðuna í viðskiptum landanna \"og mikilvægi þess að tryggja framhald farsælla viðskipta\" landanna eins og segir í tilkynningu frá forsetaembættinu.
Embættið segir þar að viðskipti þjóðanna hafi verið þeim báðum til hagsbóta í áratugi, jafnvel skipt sköpum á örlagatímum í landhelgisbaráttu Íslendinga. Á fundinum lagði forseti Íslands áherslu að virða rétt ríkja til að taka afstöðu til einstakra deilna og átaka á alþjóðavettvangi með tilliti til alþjóðalaga, aðildar að bandalögum og viðhorfa grannþjóða.
Á fundinum var og rætt um ýmsar leiðir sem gætu skref fyrir skref leitt til lausnar í ljósi þess að í báðum löndunum væri ríkur vilji til að varðveita langvarandi og gagnkvæma viðskiptahagsmuni þrátt fyrir tímabundinn ágreining um önnur mál. Söguleg átök á tímum kalda stríðsins, aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningur við Bandaríkin hefðu ekki komið í veg fyrir að Íslendingar og Rússar kappkostuðu að varðveita í áratugi hin traustu viðskiptatengsl landanna.