„Hann sagðist vera að setja Alþingi í síðasta sinn (á kjörtímabili forseta). Þetta sagði hann eftir að hafa drullað yfir stjórnarskrárbreytingar og varað þingið við hinu og þessu m.a. því að spyrða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá saman við forsetakosningar.“
Þetta skrifar Aðalheiður Ámundadóttir, aðstoðarmaður þingflokks Pírata í umræðu á facebook, en almenningur virðist leggja mismunandi skilning í hvort Ólafur Ragnar Grímsson hafi talað skýrt við þingsetningu Alþingis í morgun um hvort hans síðasta ár í embætti sé runnið upp – eða hvort hann hafi haldið opnu að bjóða sig enn einu sinni fram eftir að kjörsetu hans lýkur næsta ár.
„Hann er að tala við Guðna Ágústsson og segja: go ahead with the campain, I\m ready if you are