Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi, segist taka undir þau orð sem m.a. hafa komið fram hjá pistlahöfundum og stjórnmálafræðingum í dag, að „eitt helsta hlutverk forseta sé einmitt að hvetja landsmenn sína til umburðarlyndis , hver gagnvart öðrum, en ekki etja þeim saman.
„Mér finnst við verða að hafa tvennt í huga,“ segir Toshiki í samtali við Hringbraut. „Annað er raunsær möguleiki á hryðjuverki hérlendis. Ég er sammála því að taka þann möguleika alvarlega að hryðjuverkalið kunni að streyma til Íslands og náttúrlega þurfum við að vaka yfir því að hryðjuverkamenn nái ekki til okkar samfélags. Og mér finnst það einnig eðlilegt og nauðsynlegt að fylgjast vel með straumi peninga, stórum upphæðum frá útlöndum, þ.á.m. Saudi Arabíu,“ bætir presturinn við.
Þar með sé þó aðeins hálf sagan sögð.
„Hitt er hin einfalda staðreynd að múslímar og hryðjuverkamenn eru ekki eitt og hið sama. Með ummælum sínum hefur Ólafur Ragnar tengt byggingu mosku í Reykjavík við tilraun eða áætlun um flutning á hryðjuverkaliði hingað frá útlöndum eins og það sé sjálfsagt mál. Það er engin áþreifanleg vísbending til staðar sem rökstyður slíka tengingu,“ segir presturinn og segir mikilvægt að þjóðin komi í veg fyrir að íslamskt samfélag á Íslandi verði ekki misnotað af hryðjuverkaliðinu.
Ekki verður annað sagt en Toshiki Toma gefi ummælum forseta Íslands fremur laklega einkunn vegna ummæla Ólafs Ragnars í gær.
„Ólafur Ragnar hefur gefið í skyn að múslímar á Íslandi væru, allir, reiðubúnir að taka þátt í skipulagningu hryðjuverka. Ég veit ekki hvort hann hafi gert það meðvitað eða ómeðvitað. Ég vona að hann hafi ekki verið meðvitaður að hann hafi sett alla múslima hérlendis í sama ,,hryðjuverkaliðs“kassa,“ segir presturinn.
„Hvort sem er, ætti Ólafur, sem forseti Íslendinga, að skilja að hann var að fjalla um ofboðslega viðkvæmt umræðuefni,“ segir presturinn. Því hefði hann betur ítrekað það að múslímar og hryðjuverkamenn eru ekki sömu óvinir samfélags okkar.
„Ég held að ummæli Ólafs Ragnars gleðji aðeins þá sem langar að horfa á alla múslíma sem hryðjuverkalið.“