Forsetinn geri breytingar

Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur og fyrrum starfsmaður þingflokks Pírata, sagði í Þjóðbraut í morgun að nú megi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, taka djarfar ákvarðanir þegar hann velur þann stjórnmálaforingja sem fær umboð til stjórnarmyndunnar.

Aðalheiður minntist á ummæli Bjarna Benediktssonar að ekki væru aðstæður til tilrauna í þeim málum. Aðalheiður sagðist annarrar skoðunar. Hún nefndi sem dæmi að mál væri að hafa hér minnihlutastjórn þar sem slík stjórn geti samið við marga til að koma málum áfram þar sem óvenju margir þingflokkar á Alþingi.