Sá vinsæli og orðhagi pistlahöfundur sem Guðmundur Andri Thorsson er undrast stórum orð forseta Íslands um að öfgafullt íslam sé \"mesta vá okkar tíma\" og sá vandi verði ekki leystur með \"barnalegri einfeldni\" eða \"aðgerðum á sviði umburðarlyndis og félagslegra umbóta.\"
Hann gerir alvarlegar athugasemdir við orðaval forsetans í nýjasta pistli sínum í Fréttablaðinu í dag: \"Fyrst orðalagið: Forseti lýðveldisins á helst ekki að nota orð eins og \"umburðarlyndi\" í neikvæðri merkingu. Það mætti meira að segja hæglega rökstyðja það að eitt helsta hlutverk forseta sé einmitt að hvetja landsmenn sína til umburðarlyndis gagnvart hver öðrum, en ekki etja þeim saman,\" skrifar Guðmundur og biður forsetannn vinsamlegast um að vera fremur sameiningartákn en sundrungartákn.
Guðmundi finnst að forsetinn tali niður til útlendinga; Ólafur Ragnar megi minnast þess að hann sé líka forseti innflytjenda og honum beri að koma í veg fyrir að þeir verði fyrir aðkasti að ósekju. Svona tal sé ekki til þess fallið, nema síður sé: \"Forseti lands, \"ábyrgðarlaus gagnvart stjórnarathöfnum,\" á helst ekki að tala inn í hugarfar eins hluta þjóðarinnar, og alls ekki þess hluta sem andvígur er \"umburðarlyndi\". Umburðarlyndi er megindyggð.\"
Undir lok pistils síns minnir Guðmundur á að öfgar séu vá, hatur sé ódyggð - og sömuleiðis vanþekking, vanmetakennd, andleg fátækt, iðjuleysi og ranghugmyndir: \"Ekki er víst að aðgerðir \"á sviði umburðarlyndis og félagslegra umbóta\" nái ævinlega að uppræta þetta allt saman og hatrið og dauðadýrkunina en vandséð er að aðgerðir á nokkrum öðrum sviðum séu vænlegri til árangurs.\"