Forsetinn: ekki orð um orðumálið

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands ætlar ekki að tjá sig frekar um þá ákvörðun embættisins að svipta Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, til að bera fálkaorðuna.
 
Þetta segir Örnólfur Thorsson, forsetaritari, í samtali við fréttastofu RÚV í morgun. Ólafur Ragnar er staddur á loftslagsráðstefnunni í París og kemur til landsins á morgun. Fram kom í bók um Ólaf Ragnar Grímsson eftir Guðjón Friðriksson að Sigurður Einarsson hefði verið meðal helstu samstarfsmanna forsetans. Í bókinni var rakið að Ólafur hefði allt frá árinu 2000 unnið með Sigurði - bæði í þágu Kaupþings og annarra málefna. 
 

Sigurður var sviptur réttinum til að bera orðuna á grundvelli 13. greinar Forsetabréfs um fálkaorðuna þar sem segir að \"Stórmeistari getur, að ráði orðunefndar, svipt hvern þann, sem hlotið hefur orðuna en síðar gerst sekur um misferli, rétti til að bera hana.“ Forseti Íslands er jafnan Stórmeistarinn sem hér er vitnað til.

Það var Morgunblaðið sem greindi frá málinu fyrst miðla í morgun og vísaði þar í vef forsetaembættisins.

Guðni Ágústsson, formaður orðunefndar, sagði í samtali við fréttastofu RÚV í morgun að það væri forsetinn sem svipti að tillögu orðunefndar og að það væru nokkrar vikur siðan að þetta hefði verið gert. Guðni sagði að samstaða hefði verið um þetta í nefndinni. Sigurði  hefur verið tilkynnt um þessa ákvörðun bréfleiðis en hann afplánar nú 4 ára dóm fyrir aðild sína að Al Thani-málinu á Kvíabryggju.