"Núverandi forseti Íslands hefur aldrei stuðst við nein grundvallarsjónarmið þegar hann hefur tekið afstöðu til þess hvort hann samþykkir lagafrumvörp eða synjar þeim. Skilgreiningar hans og yfirlýsingar fjúka til og frá eins og laufblöð sem fallið hafa að hausti."
Þetta segir Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins í nýjum pistli á hringbraut.is um húsbóndann á Bessastöðum til bráðum 20 ára, Ólaf Ragnar Grímsson. Tilefni skrifa Þorsteins er krafa ríflega 30 þúsund Íslendinga um að breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu verði hverju sinni lagðar í dóm landsmanna í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi fjöldi er vel yfir 10% af kosningabæru fólki á Íslandi sem telur nú 240 þúsund manns - og þar af leiðandi hefur umræðan síðustu daga verið á þá leið að forsetinn geti ekki hunsað vilja svo stórs hluta kjósenda.
Þorsteinn er ekki viss, enda telur hann forsetann greinilega fremur prinsipplausan mann: "Þeir sem skrifa undir bænaskjalið geta því ekki treyst á neitt. Hótanir forsetans í garð síðustu ríkisstjórnar vegna fiskveiðifrumvarpa, sem hún náði reyndar aldrei samstöðu um sjálf, snerust um pólitíska stöðu hans á þeirri stundu. Nú er vindáttin önnur. En vandinn er að ríkisstjórnin getur ekki heldur reiknað forsetann út þó að hún hafi látið honum eftir að móta utanríkisstefnuna."
Sjá má pistilinn í heild sinni í pistladálkinum á forsíðunni á hringbraut.is.