Forsetinn á sviðið - og salinn

Það verður að vanda rýnt í fréttamál líðandi stundar í fréttaskýringaþættinum Ritstjórarnir á Hringbraut í kvöld, en þangað mæta þau Hallgrímur Thorsteinsson, ritstjóri Helgarútgáfunnar á Rás 2 og Ragnheiður Eiríksdóttir, aðstoðarritstjóri bleikt.is og ritstjóri Kynlífspressunnar.

Pólitísk umskipti á Íslandi verða til umræðu í byrjun þáttarins, en greina má ákveðin vatnaskil í stjórnmálunum hér á landi þegar ekki er lengur sjálfgefið hverjir taka við stjórnartaumunum að afloknum kosningum. Um langt árabil, svo að segja í hálfan mannsaldur, hafa landsmenn átt því að venjast að sterku foringjarnir hafi sett saman stjórn án atbeina forsetans, en nú ber nýrra við - og kannski hefur blessuð pólitíkin eitthvað mildast og sýnt af sér meiri auðmýkt á síðustu vikum en verið hefur í háa herrans tíð.

Frammistaða nýs forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar mun einnig bera á góma en æði mörgum finnst sem hann hafi stokkið alskapaður inn í embættið, enda lærður vel til starfans - og það virðist ekki aðeins eiga við nýja húsbóndann á Bessastöðum heldur og forsetafrúna, Elizu Reid. Þau Hallgrímur og Ragnheiður eru sammála um að forsetinn eigi sviðið um þessar mundir - og raunar salinn allan.

Undir lok þáttarins verður litið út fyrir landsteina, jafnt vestur um haf sem til Austurlanda.

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:30 í kvöld.