\"Ég mun ekki kjósa forsetaframbjóðanda sem segir: „Mér langar...\". Ég meina, það eru takmörk! Þakka þeim sem hlýddu, góðar stundir.\"
Þannig tjáir leikarinn góðkunni Viðar Eggertsson sig á fésbók vegna ummæla sem féllu hjá einum forsetaframbjóðendanna í gær.
Nokkrar umræður fara fram á vegg Viðars sem augljóslega varpar þó ummælum sínum fram að nokkru leyti í kerskni.
Um helgina bættist enn í safn frambjóðenda þegar Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, tilkynnti að hann ætli í framboð til forseta. Vigfús tilkynnti ákvörðun sína á blaðamannafundi á Hótel Borg og tók við 500 undirskriftum við þetta tilefni eftir því sem fram kemur hjá Rúv.