Nöfn Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna og Össurar Skarphéðinsson, þingmanns Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra eru oftast nefnd þegar þegar lesendur Hringbrautar eru spurðir hvern þeir vilji sjá sem næsta forseta Íslands.
Raunar bera þau Katrín og Össur höfuð og herðar yfir aðra sem nefndir eru, en Kári Stefánsson kemur oftast í þriðja sæti í þeim fjórum óformlegu könnunum sem gerðar hafa verið á vefsvæðinu, en þar hafa tveir efstu í hverri könnun haldið áfram í þá næstu og svo koll af kolli.
Í nýjustu könnuninni segjast 41% þeirra sem þátt taka vilja sjá Katrínu Jakobsdóttur á Bessastöðum, en 39% Össur á sama setri. Andri Snær Magnason nýtur stuðnings 12% og Kári Stefánsson 8%, en aðrir sem nefndir hafa verið til sögunnar í þessum helsta samkvæmisleik þjóðarinnar nú um stundir eru Berglind Ásgeirsdóttir, Guðrún Nordal, Magnús Geir Þórðarson, Ólafur Jóhann Ólafsson og Þorgrímur Þráinsson.